|
Geysisstofa
Fræðasetur við Geysi í Haukadal
Í
júní 2000 verður opnað nýstárlegt fræðasetur við Geysi í
Haukadal. Geysisstofa er einstakur vettvangur til að kynna jarðfræði
Íslands og það stórbrotna umhverfi sem mótað hefur íslensku
þjóðina í gegnum aldirnar. Allt efni er sett fram á nýstárlegan
hátt með fjölbreyttri tækni þannig, að gestir njóti þess til
fullnustu innan þeirra tímamarka sem þeir hafa aflögu.
Gestir eru leiddir í gegnum sögu lands og þjóðar allt frá mótun
til nútíðar og er notast við hátæknibúnað og líkön af fullkomnustu gerð. Í Geysisstofu má m.a. fræðast um eldgos,
jarðskjálfta, jökla, hveri, fossa, vatnsbúskap og gróðurfar.
Fræðasetur, upplýsingamiðlun, minjagripaverslun
og kaffiitería. Opið allt árið. u.þ.b. 100 km frá Rvk.
Nánari upplýsingar Hótel Geysi
sími: 486-8915
fax:
486-8715
Rafrænn póstur: geysisstofa@geysisstofa.is
Geysisstofa er hönnuð af
Guðmundi Jónssyni arkitekt í Noregi, sem þekktur er af verkum sínum
á sviði menningarferðaþjónustu. Minjasýning hönnuð af Erlendi
Magnússyni.
íslenska - English
|